Augu mín eins og tár
líða niður andlit þitt
og lenda á vörum þínum
er snerta mjúklega mínar.

Augu mín leita í þínum
í leit að draumum
sem eins og fuglar úr búri
fá frelsi

Augu mín snerta þín
fingur umvefjast
renna eftir hörundi
líkami þinn mínum


Augu mín mæta þínum
hugur þinn mínum
hjarta mitt þínu
slá sem eitt.
—–