Engin er rós án þyrna
biskup er enginn óbarinn
enginn er köttur án glyrna
ei gallalaus var hann,Frelsarinn.

Öll höfum við einhverja lesti,
samt göngum við dæmandi um.
“Hver er sá versti eða besti?”
við göngum að Frelsaranum.

En munum við dag einn fá svar,
við jafnstórri spurningu og hér?
Ef fáum við svarið, þá hvar?
Við sjáum ei hann, hann oss sér.