Elsku jóti,
málaðu af mér broslega skopmynd
Kæri bauni,
teiknaðu mig í kapatalískum
darraðadansi,
strauandi rauðglóandi kreditkortið.
Ég lofa að þjóð mín mun hundsa
danska daga í Hagkaupum.
Ég er ekki spámaður í mínu föðurlandi.