Ég er búinn að gera íslenskann texta við lagið. GHOST RIDERS IN THE SKY. Endilega segið mér hvað ykkur finnst

HANN REIÐMENN SATANS SÁ

Gamall maður reið eitt sinn um myrkann djúpann
dal.
Á ferð sinni við á eina hann hvíldi klárinn þar.
En allt í einu ´ann mikla hjörð með marki Satans
sá.
Hún æddi yfir himinn
skýjabreiðum á.

Markið brann enn báli og hófar
stáli úr.
Með horninn svört og skínandi og
andardráttur súr.
Þrumufleygur óttans þá nísti öll hans bein
Því reiðmenn sá hann Satans
og heyrði þeirra vein.

Jibbí jæ jóóóóóó
Jibbí æ jeyyyyyyy
Hann reiðmenn Satans sá.

Andlit þeirra þreytuleg og
fötin blaut í gegn.
Þótt hestum Satans hleypi þeir
Það reynist þeim um megn.
Þeir skulu ríða að eilífu og
elta Satans hjörð.
Slóðinn mörkuð eldi
Þeir ríða um alla jörð.

Jibbí jæ jóóóóóó
Jibbí æ jeyyyyyyy
Hann reiðmenn Satans sá.


Er þeir riðu framhjá , einn öskraði á
hann.
Sálu hans hann bölvaði og að háttum
hans svo fann.
Ef ekki breytt’ann verkum sínum
Hann kæmi með þeim.
Að elta hjörð Satans um
endalausann geim.


Sævar Örn Arason