Þú.
Þessi óslökkvandi þrá
sem æðir um æðar mínar.
Þú ert líf mitt og yndi.

Þú.
Þessi hömlulausi barningur hjartans
í brennandi brjósti mínu.
Þú ert sorgir mínar og sársauki.


Þú.
Þessi beisku og blikandi tár
sem brenna andlit mitt.
Þú ert fæðing mín og gröf mín.

Þú ert skjól mitt.
Þú ert áttavitalausar óbyggðir mínar.
Þú ert mér allt.
Þú ert mér einskis virði.