Falla samansöfnuðir
hjarðir vatnssameinda
hrynja úr skýjahöll
falla í tómið
gegnum rúm fyllt af engu
brotlenda á hörðum skráp jarðarinnar
fletjast út í ósýnilegt teppi
0.1-0.4 fercm.
eitt andartak, eða hálft
áður en allt verður ekkert
og fleiri dropar fylgja regninu.
—–