Stelpan sem átti allt Stelpan sem átti allt nema hamingjuna.

Ég stend úti á götu og öskra,
en enginn heyrir.
Ég öskra hærra,
en enginn heyrir.
Hverjum er ekki sama?
Þetta er bara ég,
bara litla ég.
Litla stelpan sem átti allt,
allt nema hamingjuna.

Ég stend úti á götu og græt,
en enginn heyrir.
Ég græt meira,
en enginn heyrir.
Hverjum er ekki sama um vælandi stelpu?
Bara litla, vælandi stelpu.
Litlu vælandi stelpuna sem átti allt,
allt nema hamingjuna.

Ég stend úti á götu og bið um hjálp,
en enginn hlustar.
Ég fer víðar og bið um hjálp,
en enginn hlustar.
Þau hlusta kannski,
en gleyma strax.
Hverjum er ekki sama ?
Þetta er bara ég,
bara litla ég.
Bara litla stelpan sem átti allt,
allt nema hamingjuna.