Andlit á síðum Morgunblaðsins.
Ástvinir minnast góðra eiginleika minna,
skrifa niður á blað með bleki úr tárum.
Fólk veltir fyrir sér örlögum mínum
á meðan það baðar ásjónu mína
upp úr morgunkorni og mjólk.

Af moldu er ég komin..
Grátandi fólk á titrandi bekkjum
leiðir hugann að eigin endalokum.
Hlæjandi les minningargreinar
á meðan ég bíð þess að verða af mold.