Í dag spáir skúrum
úrhelli sorga og depurðar
í sálarinnar einskismannslandi
eitruð gleðiský á stöku stað
en áframhaldandi sútur sorg og súld síðdegis.
Stormur minninga úr ýmsum áttum
herjar á óvarða huga.
Skyggni lítið.
—–