Einn daginn,
munum við
leggjast til hvílu

ég og þú

og sofna í fangi
hvers annars.

Svo munum við
vakna aftur

eftir eilífðar svefninn langa

einhverstaðar í skýjunum,
snjóhvítu skýjunum,

tveir gullskreyttir englar
saman að ganga.

Verðum ung aftur á ný,
börn drauma og vona,

og höldum ánægð
saman inn í eilífðina

því að við vorum
ástfangin

frá upphafi,

til
æviloka.

———-

Ég elska þig Thelma.
Þinn, Hlinur.