Það var sumar.

Ég er tré,
en þú fugl.

Og þú
reistir þér hreiður
í hjarta mínu.

Og ég lofa,

hvernig sem á
eftir að viðra,

þá skal ég halda
Laufblöðunum
allt árið í kring,

sama hvað á reynir,

Til þess
að veita þér skjól.