Í hvers manns hjarta
hvílir dáið barn.

Það hefur gleymst
að fæða það
andlegu gulli.

Í hvers manns hjarta
hvílir dáið barn.

en svo
einhvern tíma
í ellinni,

fær það síðasta orðið.