Svo eru það þessi orð.
Þessi blessuðu orð.

Sem, fyrir svo mörgum,
standa eins og steinar
einhverstaðar úti í buska.

en

Steinn er bara steinn
Ef maður sjálfur fær að ráða,
En hugurinn getur breytt þeim
Í demanta og gull.

Slepptu takinu
Og lofaðu þessu litla
að verða miklu stærra.

Því það þarf bara smá til.
Til þess
að koma okkur á flug.