Guli maðurinn í grænu fötunum
er æstur, hann er æstur í
bleiku konuna í bláu fötunum.
Hendur hans eru gular,
hennar eru bleikar.
ANSDSTÆÐAN ER ÓLÝSANLEG!
En ástin spyr ekki um stund né stað.
Stóratá starir út í loftið.
Baugfingur bendir á skipið
sem siglir inn höfnina.
Hafið er spegilslétt.