Nú ætla ég að tjá mig um pólitík í fyrsta skipti.
Hef lítinn sem engann áhuga á umræðunni,
fjölmiðlafrumvarpið,ég ekki einusinni öxlum yppti!
Hvernig væri að hressa aðeins uppá þing-skrílinn
troða þeim öllum upp í forsetabílinn
bruna beint uppá Landspítala,
því að í útliti, þau hrapa niður alla skala.
Rush-a þeim í make-over til hins betra.
Var það á Alþingi eða Omega, þar sem einhver bar nafnið Petra?
Hví ætti landinn að fylgjast spenntur með gangi mála,
held að þingmenn ættu gott af því að tala við einhvern sála.
Við fáum lítið að taka þátt í loka-niðurstöðunni.
Þetta byrjaði allt á Þingvöllum,
hélt þetta hefði byrjað í einhverri sveitahlöðunni!!!
Æji, haldið þessu bara fyrir ykkur,
þetta þing er einsog illa blandaður drykkur.
Veit ekki af hverju ég byrjaði að tjá mig.
Ég er farin, Alþingi mun aldrei á ævinni fá mig ;)
Ég er ég og þú ert þú svo ekki halda að þú þekkir mig!