Ímyndin úr mynd. Aldrei sönn.
Ekkert hér fær staðist tímans tönn.
Orðin falla, undrun vaknar.
Augun leita hjartað saknar.
Best er að berast með straumnum.

Ímyndin úr mynd. Allir eins.
Mótspyrna er ekki til neins.
Augun beinast inn á við,
örlögin gefa engum grið.
Allir munu farast í straumnum.

Ímyndin úr mynd. Aldrei aftur.
Græðgin er hinn eini drifkraftur.
Augun lokuð orðin tóm,
klukkan glymur holum hljóm.
Að ósi við fylgjum straumnum.

Ímyndin úr mynd. Úr fókus.
Gríptu karfann!