Þegar hugur hendist frá
hljóðnunar til hljóða.
Í mér stækkar skáldaá
straumur í formi ljóða.

Vinnu mikla bak mitt bar
bæði á sál og hami.
Öruggur á sviði var
efldist þá minn frami.

Sýningu lauk og lófatak
lét duglega í sér heyra
Leikarar með bogið bak
báðu ekki um meira.

Sýningargestir gefa hrós
og gommu af gagnrýni.
Síðan er skundað upp í Kjós
að skála í kampavíni.

—————————————-
kv.peacock