Gul blikkandi ljós
flökta í fjúkinu
milli Hundrað og eins
og Næsta bars,
meðan snjóskafarinn
þræðir sér leið milli
gljáandi “víðáttu flækinga”,
sem æla út úr sér
sauðsvörtum lýðnum
með röndótta lykkjutrefla
á leið í rann bakkusa