Tilfinning með orðum…

Finnst ég falla,
falla í ský.
Allt er undarlegt,
undarlegt á ný.

Finnst ég hlaupa,
hlaupa burt.
Tek inn lýsi,
en lýsið er þurrt.

Finnst ég fljúga,
ég flýg hátt.
En eitt veit ég,
ég lendi brátt.

Finnst ég syngja,
syngja fallegt lag.
En ekki kemur út úr mér
neinn tónn í dag.

Finnst ég geymd,
geymd í hillu.
Ég er skraut,
skreytt gylltu.

Finnst ég hugsa,
hugsa um þig.
En varla veistu að
ég er til.

Finnst ég glötuð,
glötuð án þín.
Þetta er einfaldlega
bara tilfinningin mín.