Kristur er komin að krefjast friðar
Kraminn af hátign yðar

„Við verðum að verjast gegn soltnum varmönnum
Því annars éta þeir okkur til agna
Ef þeir eiga atómbombu þá eignumst við hundrað“
Grimmdin í mönnunum grefur yfir Guð
Heimskan mun leiða okkur til heljar ekki himna
Pældu í að búa yfir banvænum böggli
Pældu í að myrða mörg þúsund manns
Síðan hrósa samviskulaus sigri
„Jess við eigum verðmætar vörur
Svo ég kaupi mér heilan helling af hamingju
Aumingjar! lúðar! sem eiga ekki neitt“
Græðgin í mönnunum grefur þeirra gröf
Allir vilja endalausan auð
Flestir svíkja og fjárkúga fúlgur
Skarinn skyrpir og skítur í silki
Einn maður á heilar hundrað hallir
Og þess vegna deyr þjóð hans úr þorsta
Annar maður á marga milljarða peninga
Hans vegna andast milljón aðrir útlendingar
Fjandinn færir þessum fáu gull
Ertu hissa á óreglu í Afríku?
Þetta er ekki bara úti heldur einnig hér heima
Það er ekki bara Bush sem ber ábyrgð
Þetta er samt ekki sameiginleg sök
Fokk it, fari þetta allt til fjandans
Varla er verra í víti Satans
Svona er raunveruleikinn eins raunverulegur og hann reynist
Ef einhver er með bögg, á þá bara að berja hann?
Einn kaldan úr krana og Hvítt í nös
Falleg og fríð fullnæging í æð
Engar áhyggjur, er það allt sem þú þarft?
Er hakúnama helvítis tata hamingja?
Eða bara önnur undankomuleið til andskotans?
Hví að eiga tæki sem taka líf með einum takka?
Hvers vegna fer friðurinn alltaf til fjandans?
Örsmár aðskotahlutur fylltur af aumkunarverðu púðri
skröltir í skjálfandi málmhlut og skýst
vegna vannmáttar af mannana völdum
hittir kúlan í hamandi hjartað
Nú er enn einni sál ekið upp til himna

Kristur er komin að krefjast friðar
Kraminn af hátign yða