Mér er svo farið að vita eigi
hvaða leið á að fara.
Ætli það leyfist
að ganga á forboðið svæði
alsælu eilífðar
að eigin vilja.

Að mæta komandi tíð
í ljósaskiptum erfiðis
og ánægju, er oft um megn.
Er lífið þess virði.
Að sigra á stundum,
en tapa enn oftar.

En er það ekki að tapa
Að taka eigið líf.
Sjálfselska og eigingirni
Óvirðing við þá sem syrgja
Og hafa ekki tíma
til að fylgja þér,til grafar.

E.S.
til minnis: Gleyma ekki að tékka á tímanum
Svo allir komist.