Ég er umkringd af myrkri
króuð af úti í horni
Á mér engrar undankomu auðið
og þögnin er að æra mig
Sorgin sönglar í hjartanu
og ég - ég syng með
Þarf það að vera svoleiðis að
þeir sem guðirnir elska - deyja ungir?