Himinn og Jörð Himinn og Jörð
leiðast í rökkrinu
hvíslast á um hörmungar
liðinna daga.

Órjúfanlegt bil þeirra
myndast í dagrenningu
stigi ljóssins birtist
þar sem sálir liggja
í votri gröf.

Týndir draumar
skolast burt.
Himinn og Jörð
leiðast í rökkrinu
á meðan við sofum.