Ég geri mér fyllilega grein fyrir því að þetta er ekki mitt besta verk. En nú er þannig ástandið að ég er orðinn leiður á lægð innblásturs og ætla því að þvinga mig svolítið til þess að halda mér í formi og þvinguð ljóð verða aldrei eins og þau sem flæða fram.


Eskimóar

Í suðrinu sæla
standa tveir útlendingar,
hvor frá sínu landinu
með hendur í vösum…

þau standa fyrir framan Elginn
sem horfir á þau kyssast…

kyssast, eins og eskimóar…


Magnús Ben.