Af hverju myndast tár í augum mínum
þó að það sé svo langt síðan?
Á tíminn ekki að lækna öll sár?

Af hverju fæ ég aldrei þann sem ég vil?
Af hverju get ég ekki gleymt honum
sama hvað ég reyni að hunsa
hugsanir um hann?

Af hverju getur allt sem er gott ekki blessast?
Af hverju getum við ekki farið aftur í tímann
og breytt því sem átti að fara betur?

Og af hverju neitið þið þessu bæði?
Þið vitið að þetta er satt
Þetta gerir mig svo reiða

Þú vilt hana og ef hún gæti,
þá myndi hún vilja þig
Ég er ekki blind
Þetta er svo augljóst

Þessi tilfinning á milli ykkar
er skrýtin og sár fyrir mig
en spennandi fyrir ykkur

Ég finn til, þess vegna er ég