Brjálað haustveður
Grenjandi rigning og eilífur vindur
Himinninn skartandi grásvörtum skýjum
Sem kastast og rifna í sundur
Ég verð þunglynd og græt
Eða sturluð og öskra
Jafnvel vonlaus og sama um allt
Hljóðlát og þögul sem gröfin
Sem ég gróf sjálfri mér
Æfina út
………Þó er ég enn ekki búin.