RÖNDÓTT SMS

Hvernig er hægt að elska en samt hata?
Hvernig er hægt að eiga en glata?
Hvernig er hægt að kveljast og þjást
en vilja samt þessa ást?

Ég sagði hæ en meinti bless,
er hætt að vera öfga hress.
Þú sagðir allt og vináttu vildir,
ég sagði það aldrei skyldi!

Ég hefði gefið þér allt sem ég á,
ef þú hefðir spurt - hefði svarað já.
En þú með þinn kindarhaus
mátt sitja áfram liðugur og laus.

Ég er orðin þreytt á að bíða,
og er hætt að kvíða.
Ég kveð þig með bros á vör,
því ég á ekki fleiri svör.