Ég fór á flottan bar
sá ég fagra dömu þar
með djúp blá augu og ljósa lokka
hún var full af yndisþokka

Við töluðum í dálittla stund
við vorum bæði létt í lund
ég fylgdi henni á hótelið
og við gengum inní herbergið

Ég kyssti hana og hún kyssti mig
en hún vildi meira en láta kyssa sig
við nutum ásta þessa nótt
og eftir þær ástir við sváfum rótt

Alla nóttina ég svaf eins og steinn
en er ég vaknaði, þá var ég einn
ég leit í kringum mig og leit á borðið
og þá tók ég eftir, veskið mitt var horfið
Kíkið endilega á síðuna mína www.folk.is/nixey