Fiðrildin flögra um í maganum á mér
Allt breytist
Það sem áður var er ekki lengur
Þau byrja að rekast á
Allt verður að fullkominni ringulreið
Ég veit ekki neitt í minn haus
Nístandi augnaráð þitt sker mig í tvennt
og fiðrildin byrja að naga mig að innan
Á augabragði tekst þeim að brjótast út
og ég verð ekki lengur
fangi ástar þinnar.