Rifrildi…
Ég kem heim og finn hvernig rafstraumurinn liggur í loftinu.
Ég finn hvernig þú horfir á mig stingandi augnaráði sem sker sig djúpt gegnum sálu mína.
Ég veit ekki hvað ég gerði núna
Ég veit ekki hvað ég gerði ekki
og ég veit ekki hvað er að þér núna.
Rifrildi byrjar
Orðaflaumurinn streymir um
Hlutir kastast
og tárin byrja að flæða.
Öll rifrildi enda með tárum
Öll þín rifrildi enda á þér
Öll vandamál eru mér að kenna
og það er mitt að leysa þau.

Þegar tárin flæða niður kinnar þínar
flögra þau um loftið og enda á því að festast á hjarta mínu
þau éta sig í gegn
þau tæra það upp
og skilja eftir sig ör.

Þegar einhver sem ég elska hatar mig
Þegar einhver sem ég þrái forðast mig
Þegar einhver sem ég sakna hittir mig ekki
og fer enn lengra í burtu
þú grætur er ég hitti þig
ég get ei lengur huggað þig
þú ferð í burtu er ég nálgast
stendur fjarri er ég stansa
en mundu það að alltaf munu tárin streyma
og tárin munu flögra áfram
heim til mín
inn í mig
og skilja áfram eftir sig ör.

Dropar úr sýru
Tárin þín
éta mig að innan.
Náttúrubarn, landfræðinemi, veiðimaður, ljóðskáld og alls konar manneskja.