Þegar pabbi segir mér fréttirnar:


“Hann afi þinn dó í dag.”


Kem ég varla upp orði,


Trúi þessu ekki, eða vil ég ekki trúa þessu?


Svo sé ég að mamma grætur,


Þá munar litlu að ég brotni niður.


En ég verð að vera sterk.


Mamma þarf á miklum stuðningi að halda.


Svo reyni ég af öllum mætti að halda grátnum inni,


En ég get það ekki


Og ég brotna í þúsund mola.