Loftið kyrrt
bláminn hulinn hnoðrum
sem hvítur grannur þráður
þræðir eins og perlur á festi.

Einhver sagði mér
litlum snáða
að ljósin í skýjunum
væru fljúgandi bílar.


—-

Ég man alls ekki hvort ég hafi sett þetta ljóð hingað, það er eitt af mínum fyrstu, samdi það þegar ég var svona 17 ára um minningu sem ég átti af sjálfum mér og mömmu bíðandi eftir flugvél.
—–