Sárkvalin,
dolfallin
og allt þar í kring.
Nístandi
sársauki
og allt snýst í hring.
Aldrei þessu vant
veit ég ekkert hvað ég vil
stígandi mín skref
með óreglubundin bil.
Kannastu við það
að eiga alla að
vitandi að ég á allt
og miklu meira en það.
Hugarfylli af von
um að allt breytist mér í vil
gerðu það, segðu mér svör,
ég finn svo mikið til…
Eins manns rusl er annars manns fjársjóður…