Hann horfði á mig
Með þessum svörtu augum
Augu sem stinga
Augu sem meiða
Augu sem sjá sálina og lesa hjartað
Það er sárt
En ég hugsa með mér
“Brátt verður nóttin löngu liðin.”