vantar hjálp við ljóðagreiningu nauðsynlega.
ég þarf að fá að vita persónugervingar, tákn, andstæður, hliðstæður, vísanir, rómantísk einkenni og um hvað ljóðið fjallar. ef einhver veit eitthvað af þessu þá væri frábært að geta fengið smá upplýsingar. hér er ljóðið:

Dettifoss
Þar sem aldrei á grjóti gráu
gullin mót sólu hlæja blóm
og ginnhvítar öldur gljúfrin háu
grimmefldum nísta heljar-klóm,
kveður þú, foss, minn forni vinur,
með fimbulrómi sí og æ;
undir þér bergið sterka stynur
sem strá í nætur-kulda-blæ.

Kveður þú ljóð um hali horfna
og hetju-líf á fyrri öld;
talar þú margt um frelsið forna
og frægðarinnar dapra kvöld.
Ljósgeislar á þér leika skærir,
liðnir frá sól í gegnum ský;
regnboga-litir titra tærir
tröllauknum bárum þínum í.

Ægilegur og undrafríður
ertú, ið mikla fossa-val;
aflrammur jafnt þú áfram líður
í eyðilegum hamra-sal.
Tímarnir breytast; bölið sára
það brjóstið slær, er fyrr var glatt;
er alltaf söm þín ógnar-bára
ofan um veltist gljúfrið bratt.

Stormarnir hvína, stráin sölna,
stórvaxin alda rís á sæ,
á rjóðum kinnum rósir fölna
í regin-köldum harma-blæ,
brennandi tár um bleikan vanga
boga, því hjartað vantar ró
- en alltaf jafnt um ævi langa
aldan í þínu djúpi hló.

Blunda vil ég í bárum þínum,
þá bleikur loksins hníg ég nár,
þar sem að enginn yfir mínu
önduðu líki fellir tár;
og þegar sveit með sorgar-hljóði
syngur döpur of ann´ra ná,
í jörmun-efldum íturmóði
yfir mér skaltu hlæja þá.