Hvernig geturðu verið farin,
þar sem ég kvaddi þig aldrei?
Þú veifaðir mér
en sást mig aldrei veifa tilbaka.

Hvernig get ég verið sú sem þú lítur upp til?
Stóra systirin sem allt getur,
ætlaði að lesa fyrir þig síðasta kvöldið
en gleymdi því.

Hvernig getur hún ekki þekkt þig,
þegar þú ert ljóslifandi
í sögunum sem henni eru sagðar
af þér, stóru systurinni sem allt hefði getað.

Hvernig get ég saknað þín svona mikið
en samt glaðst yfir fallegum degi.
Þú hlýtur að vera þarna,
við munum sjást aftur.
There is no sin but stupidity. (Oscar Wilde)