Hvaða strætó gengur til Helvítis?
Er hann gulur eins og hinir?
Er hann með bleikum tengivagni?
Fer hann á fleygiferð um göturnar
Eða svífur hann yfir fjallstindunum?

Hvernig væri lífið án depurðar?
Væri allt svart,
Engin ljós á götunum?
Væri Himnaríki þá til?

Að líða illa er eins og að deyja,
Detta niður í þunglyndi,
Rísa upp eins og afturganga,
Og allt deyr í kringum þig.