Það er eins og
að hringur myndist um lífið,
hringur myndist um þig,
sem á að verjast gegn illu,
en ber allt það illa innra með sér.

Svo er þú reynir að flýja,
komast úr tímans rás
þá lokar hringurinn farveginn
þú ert læst í lífi sem þú sást,

sást en ekki trúðir,
líf svo hræðilegt
svo ömurlegt að þú hélst
þú myndir aldrei verða slíkt

Svo kom að því að mundir verða,
eins og allir bjuggust við,
allir draumar,
horfnir,
flognir á braut framávið

og eftir situr þú
skel af manneskju
sem eitt sinn hafði trú
en hefur öðlast vitneskju

vitneskjan færði þér
ótal sorgir
meðal annars ást
en upp úr öllu
var ekkert sem þú sást

aðeins veist
það sem þér er fyrir bestu…
það sem þér er bara sagt
og úr augum þínum lestu:


þú villt deyja
þú villt falla
þú villt segja
ég vil fara…







Samspil huga…

……………………………………………………Christiana ~ Jói
True blindness is not wanting to see.