Í bjarma neistans sé ég andlit framtíðar
geislarnir skríða yfir mig
ljósið kastar hita á mig
ég sé vonarglætu í neistunum frá járninu.

Í hitanum finn ég hvernig ég hitna og roðna
ástin kastar hita í kinnar mínar
hitinn hleypir kulda í fætur mína
ég finn hamingjustrauminn frá hitanum í járninu.

Í járninu breytast litirnir skjótt í ljótt
hatrið kastar straumi í hjarta mitt
sálin hverfur bak við lífið mitt
ég finn brunalyktina er ég snerti rauða litinn í járninu.
Náttúrubarn, landfræðinemi, veiðimaður, ljóðskáld og alls konar manneskja.