hjarta mitt titrar
hugur minn reikar
kuldinn mig skekur
og ég get aldrei tjáð
ást mína á þér
vindurinn hvín í trjánum
regnið skellur á berginu
þrumurnar dynja
og ég öskra og ég öskra
en eina sem ég get sagt
eru endurtekin orð þín

Sprungin úr harmi
reika ég burt
ég flý inní bergið
og græt þar að eilífu
meðan er það eina
sem ég get gert
er að endurtaka orð þín
ég er bergmál þitt
bergmál það sem eftir er…