Andvaka
fjögur að nóttu
á virkum degi

Hún liggur við hlið mér
óviss um hvað framtíðinn beri í skauti sér.
Innan um hlátur hrotranna
sem halda taktfast áfram
þartil að haninn galar

Ég veit ég gæti
gert þetta að eilífu,
horft á hana sofandi.
Svo saklausa og fallega