Hjartanu blæðir
þegar minnst varir,
væri gott ef hægt væri
að nota almennan plástur.

Tárin hrynja
þegar minnst varir,
væri gott ef hægt væri að skrúfa
fyrir kranann.

Hvar…..
er viðgerðarmaðurinn.