Klippimynd um nótt,
kvistir trjánna,
skera tunglið í parta.
Húsin límast á dökkan flötinn,
lítil of-g stór,
ljós í einstaka glugga.
Lokuð augu
opin augu
einmanna fótatak
á teningum gángstéttanna.
stjörnurnar límast
á svartan himin.

Taktu skærin
kliptu út lítið barn
sem vefur að sér sænginni
og sofnar.