TAKK

Ég er vond, ég er sterk,
ég sit á háum hest.
Ég er sjúk og með kaupæði,
ég er sálin í Íslendingi.

Ég var góð, ég varð hörð
og stóð um sjálfstæði vörð.
En nú er ég bara aurasál,
ég kann ekki lengur mitt eigið mál.

En ég á von, ég get breyst
og hætt að vera svona breysk.
Ég get lært að segja takk
fyrir það sem á borð mitt er lagt.