BLONDIE

Ég er glókollurinn þinn
og þú ert minn.
Þarfnastu mín
í þetta sinn?

Ef ég aðeins gæti
leitt þig og kysst.
Ef mér liði ekki eins
og þig hafi misst.

Ef ég fórna tilveru minni
fyrir snertingu þinni,
verður þá pláss fyrir mig
á himnafestingunni?

Járnkrumlur um mig miðja,
segjast vilja við mig styðja.
En aðeins ég á lykil
ef ég opna verð ég svikin?