Þú kemur og tekur utan um mig,
strýkur tárin í burtu,
kyssir mig hinum ljúfasta kossi.
En þá vakna ég upp af þessum draumi.
Þú ert horfinn.
Þú kvaddir mig í gær,
eftir langa dauðagöngu ástar okkar.
Sama hversu mikið við elskum hvort annað,
það er ekki nóg.
Við getum ekki lifað saman í sátt.

Esmeralda 13/05/2001