Í huga mínum situr Jesú.
Hann gæðir sér á hugsunum mínum.
Með bros á vör,
rífur hann í sig skoðanir mínar.
Í græðgi sinni étur hann einnig
minningar mínar.
Persónuleiki minn hefur þá verið
étinn upp til agna.
Jesú fyllir síðan í tóman hugan
með skít.
Þessum skít sem kallast trú.
Ég er ofsatrúarmaður,
fullur af skít!