Vöggugjöf ( Steinn Steinarr )

Litla barn með bera fætur,
bros í auga, roða á kinn.
Veistu hvaða gjöf ég gef þér?
Gettu, litli stúfur minn!

Kóngsdóttur og konungsríki,
kastala á fögrum stað?
Nei, við skulum sleppa slíku.
Það er slúður allt um það.

Gott og nytsamt verk að vinna,
vilja og dugnað heiðvirðs manns?
Nei, því miður. Nú er komið
nóg af slíku hér til lands.

Kaupmanns fégirnd fláa, slungna,
er fátæks skilding dregur sér?
Sjáðu til, þar sitja margir
og smátt mun eftir handa þér.

Grát og þjáning, gnístran tanna,
guðlaust stríð við sult og nekt?
Hvaða bull ! Við þekkjum þetta.
Það er allt of hátíðlegt.

Fífldjarft þrek und fólksins merki
frelsisþrá og mannúð vígt?
Sjáðu, hvað við höfum hérna:
Höggstokk, gálga og fleira slíkt!

Nei, þú getur naumast hlotið
neitt af þessu heilt né hálft.
Sjá! Ég gef þér tryggt og trúfast
tilgangsleysið: Lífið sjálft!

Höf: Steinn Steinna