BLESS

Fuglar fljúga,
menn ljúga.
Svíkja og grýta
og sálina sýkja.

Vertu sæll…
Þú maður án frumkvæðis.
Þú ert kraftalaust vélmenni
á sjálfstýringu heimsins.

Ég þvæ sálina af þér
og öllu sem þú hefur gert.
Já og fyrirgef þér
fyrir að hafa mig snert.