Nafn rósarinnar
Er sem englanna undurblíður söngur.

Nafn rósarinnar
Er sem tær hjalandi lækur.

Nafn rósarinnar
Er sem gælur sumargolunnar.

Nafn rósarinnar
Er sem blíð snerting ástarinnar.

Nafn rósarinnar
Eru öll fegurstu ljóð skáldsins.

Nafn rósarinnar
Eru heimsins fegurstu tónar.

Nafn rósarinnar
Er nafnið þitt.